TAKMARKINU NÁÐ KOMIN Í KJÖRÞYNGD
Barnabörnin á barnalandi
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 ágúst
06.08.2008 01:16:19 / spekoppur

Loksins loksins

Jæja elskunar mínar ég er búin að vera í alveg rosalega miklu blogg óstuði :lol:
Við hjónin erum nýkomin úr 5 vikna Spánarferð :)  þessi ferð var alveg rosalega góð í alla staði. Ég þyngdist um ca 3 kíló og er ég strax farin að vinna í því að taka þau :$ Þrátt fyrir langa göngutúra á hverjum degi og samviskusamlega borðað grænmeti 2 svar á dag komu þessi kíló:(  þýðir ekkert að væla yfir því.

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 21:00:05 / spekoppur

Smá munur

 Hæ elskurnar mínar ég mátti til með að sýna ykkur  þessar myndir :haha: barnabörnin mín voru að skoða myndir og sáu þá þessa efri mynd og sögðu Guð minn góður þetta er amma :$:haha: þá segir sú elsta já hún var bara einu sinni svona, engin furða þó svo þær hafi greyið orðið undrandi það eru 30 kg farin:haha:


Þessi er tekin í maí 2005 í fyrstu útileigunni mín voða pattaraleg :$

Þessi er tekin núna um jólin :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 09:17:18 / spekoppur

Frábær dagur

Hæ elskurnar mínar ég má til með að segja ykkur frá frábærum páskadegi :haha: hann var í alla staði yndislegur :haha:
Börnin min, tengdabörn og barnabörn komu öll í kvöldmat og var það alveg æðislegt að geta verið ÖLL svona saman , það gerist ekki oft þar sem strákarnir mínir eru alltaf að vinna á svona dögum .
Afmælissöngurinn var sunginn fyrir yngsta gullmolann minn hann varð 3ja ára í gær :haha: tíminn er ótrúlega fljótur að líða, finnst eins og hann hafi fæst í gær :haha:

Jæja best að fara að gera eitthvað hafið þið það gott :haha::haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 18:38:40 / spekoppur

GLEÐILEGA PÁSKA

Ég má til með skrifa smá núna :haha: veðrið er búið að vera alveg dásamlegt í allan dag, maður sér hvað það lifnar yfir fólki í svona góðu veðri :haha: það fer að hreinsa til í görðunum hjá sér og jafnvel að bera á pallinn :haha:

Ég er búin að vera í páskafríi alla vikuna :haha: bara æðislegt, bara að dóla sér og slappa af.

Hvenær skildi þetta ástand hérna taka enda, íslenska krónan lækkar bara og lækkar :^) svo maður nagar sig í handarbökin að hafa ekki keypt evru þegar gengið var lægra :$ eins þetta verð á bensíni og dísilolíu hvar endar þetta eiginlega :^) maður fer bara að nota lappirnar meira það er deginum ljósara. Best að hætta að tala um  þetta maður verður svo argur :frown:

Jæja krúttin mín hafið þið það gott um páskana.

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 18:29:25 / spekoppur

Sólarlandaferðir

Jæja loksins er ég komin júhú :haha: ég má til með að segja ykkur GLEÐIFRÉTTIR :haha: við hjónakornin erum að fara í tvær sólarlandaferðir í sumar :haha::haha: já þið heyrðuð rétt. Við erum að fara í fyrsta skiptið ein :$ það er ekki eins og við höfum farið oft til útlenskra landa heil 3 skipti og auðvitað hlakkar okkur alveg óstjórnlega til :haha: Fyrri ferðina förum við 25.júní og ætlum að vera í húsi sem starsmannafélag Hafnarfjarðar á  LA Zenia á Spáni það er svona rétt 10 mín frá Torrevieja. Þar ætlum vð að vera í tvær vikur :haha: við erum svo heppin að bróðir minn og mágkona ætla að koma og vera með okkur seinni vikuna. Þá ætlum við að taka bílaleigubíl og ferðast um og spila golf. Ekki leiðinlegt :haha::haha: Seinni ferðina ætlum að fara til Benidorm og þá förum við 9 saman , sem sagt við hjónin ,dóttir okkar og tengdasonur og dætur þeirra þrjár og svo mamma tengdasonar míns og bróðir hans. :haha::haha: í bæði skiptin fljúgum við á Alicante. Þetta verður alveg æði :haha: ég get varla beðið hehe
Allt gengur annars vel hjá mér er að fara í vatnsleikfimina núna :haha::haha:
Hafið þið það gott. 

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 19:41:00 / spekoppur

Leiguíbúð góður

Leiga á íbúð.
Kaupsýslumaður utan af landi fór í viðskiptaferð til Reykjavíkur. Hann hitti þar unga og huggulega konu og fékk að njóta ásta með henni næturlangt. Umsamið verð fyrir greiðann var kr. 30.000

Daginn eftir mundi kaupsýslumaðurinn að hann var ekki með reiðufé á sér, bara greiðslukort, sem hann gat ekki notað til að borga konunni. Því samdi hann við hana um að ritari sinn myndi senda henni greiðsluna, það yrði búin til nóta og á henni stæði “Leiga fyrir íbúð” svo allt liti nú vel út. Með þetta skildu þau.
Þegar heim kom fannst manninum að greiðinn hefði ekki verið 30.000 kr virði, og hann fór að sjá aðeins eftir þessu, samviskan lét á sér kræla, enda var hann giftur. Hann lét því ritara sinn senda konunni helming greiðslunnar kr. 15.000 sem leigu fyrir íbúðina, ásamt eftirfarandi athugasemdum:
1.        Það kom í ljós að íbúðin hefur áður verið notuð. Því er þetta of há leiga.
2.        Það var enginn almennilegur hiti í íbúðinni.
3.        Þessi íbúð var alltof stór, til þess að líða vel í henni og hafa það notalegt.
Því mun ég ekki greiða nema kr. 15.000 fyrir húsaleiguna.
Nokkru seinna barst kaupsýslumanninum eftirfarandi bréf frá konunni:
1.        Auðvitað hefur svona falleg íbúð verið notuð áður. Það væri heimska að álíta annað.
2.        Hitinn var nægur, en þú kunnir ekkert á að stilla hann.
3.        Íbúðin var alls ekki of stór, en þú hafðir engin almennileg húsgögn til að fylla upp í hana.
Því krefst ég þess að þú greiðir umsamda leigu að fullu, fyrir íbúðina. Verði það ekki gert, mun ég hafa samband við fyrri leigusala þinn.!!!
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 13:18:16 / spekoppur

Hjálpa að flytja

Jæja krúsurnar mínar ég er búin að vera að hjálpa dóttur minni og tengdasyni að flytja :haha: Þau voru að flytja í sína fyrstu íbúð ...vá hún er bara æði :haha::haha: Dætur þeirra eru himinlifandi yfir flutningunum og eru alveg einstaklega duglegar að hjálpa til :haha:  Þau ætluðu að byrja að flytja í gær, en breyttu því í fimmtudag af því að þá gat sonur minn sem býr á Skaganum komið til að hjálpa að bera :haha: Þetta rokgekk allir stóru hlutirnir komnir í hús á fimmtudarskvöldi svo er búið að vera að fara ferðir til að sækja ....þetta er endalaust sem maður á þegar maður flytur...þó svo manni finnist maður eiga ekkert :$ haha.

Gangi ykkur sem allra allra best elskurnar mínar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 19:53:43 / spekoppur

Slóðaskapur

Hæ krúttin mín :haha: allt gott að frétta af minni.

Öskudagurinn senn á enda :haha: það var mikið fjör hjá börnunum i dag i skólanum :haha: allir í frábærum búningum og að sjálfsögðu vorum við fullorðna fólkið líka í búningum  og máluð  , ég keypti hárkollu sem er með mjög síðu krulluðu grænu hári, og krakkarnir fengu auðvitað hláturskast :haha::haha:

Svo er bara aftur komin helgi rosalega líða vikurnar hratt, það verða komnir páskar áður en maður veit af :haha:

Ég var að fá mail frá sléttarfélaginu mínu og og óhappagrísin ég hafði fengið úthlutaða íbúðina okkar á Spáni 25.júní til 9 júlí. :haha: ekki reiknaði ég með að fá hana.

Svo eru það fleiri afmæli :haha: yngsta dótturdóttir mín varð 8 ára á bolludaginn, svo er okkur hjónum boðið í 50 ára afmæli á laugardaginn í sveitina :haha: og svo á systurdóttir mín afmæli 20.feb og verður 8 ára :haha::haha: Ekki má gleyma Inga litla bróður hann varð 45 ára 28. jan :haha::haha:

Sjónvarpið er að gera manninn minn vitlausan hann fær það ekki til að virka uppi  á efri hæðinni hjá okkur alveg sama hvað hann gerir. Hann er búinn að skipta um loftnetið úti ,hann er búinn að skipta um allar snúrur og svo fór hann í dag og fékk nýja digital lykla og ekkert gerist :( Hvað getur þetta eiginlega verið ???

 

Jæja krúsurnar mínar hafið þið það sem allra allra best.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 20:43:36 / spekoppur

Ég er hérna

Hæ elskurnar mínar ég hef ekki setið auðum höndum í janúar :haha::haha: alltaf nóg að ger hjá minni, hérna kemur smá yfirsýn :haha:

6. janúar á næst eldsta barnabarnið mitt afmæli og varð hún 9 ára ,

9. janúar á ég sjálf afmæli og varð ég hummmmm 49 ára víst úffff stutt í 50 árin.

19. janúar fór ég í útskriftarveislu hjá tengdasyni mínum, hann var að útskrifast úr Háskóla Reykjavíkur sem tölvunarfræðingur. En það gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig skal ég segja ykkur, á miðvikudeginum 16. jan var hringt í hann úr skólanum og honum sagt að hann gæti ekki útskrifast núna þar sem honum vantaði strjálu stærðfræði upp á sem hann yrði að hafa. Hann var búinn að vera í einhverjum fögum þessa önn til að vinna upp einingar til að geta útskrifast í samráði við námsráðgjafann, sem sagði að hann væri búinn með allt sem hann þyrfti að taka til að útskrifast sem tölvunarfræðingur. Guð minn góður hvað þetta var mikið kjaftsök búið að bjóða í veislu og allt. Hann skrifaði mail til allra þeirra hæstráðanda í skólanum og fékk þau vör að ekkert væri hægt að gera, en hann fengi næstu önn frítt og útskrifaðist þá í júní. En hann var ekki alveg sáttur með það sem eðlilegt er, þá kom mamma hans með þá snjöllu hugmynd um að hann myndi taka prófið. Hann sendi þá aftur mail og bað um að fá að taka prófið hann hafði engu að tapa. Hann fékk jákvætt svar við því svo hann fékk sendar glærur og fyrirlestra frá kennaranum og hófst þá maraþon námið að læra á sólarhring það sem hinir höfðu lært á heilli önn. Hann mætti í prófið kl 13, 18. janúar og fékk að vita útkomuna stax að loknu prófi enda bara sólahringur í stefnu, og viti menn hann náði prófinu guð minn góður hvað ég er stolt af honum.:haha: Veislan heppnaðist mjög vel. Til hamingju Steini minn þú ert hetja.

20. janúar á svo litla barnið mitt afmæli og varð hann 22 ára :haha:

22. janúar fór ég ó 60 ára afmæli og 40 ára brúðkaupsafmæli í frábæran sal sem heitir Rúbínsalurinn við Keiluhöllina. Salurinn og veislan voru frábær.+

Svo þið sjáið að ég hef ekki verið aðgerðarlaus elskurnar mínar.

Allt gengur vel hjá mér ennþá ég vigta ennþá allt ofan í mig og held mér við DDV, reyndar ekki alveg eins stíf og ég hef verið, en held mér samt við efnið.

Takk fyrir heimsóknirnar elskurnar mínar, hafið það sem allra allra best.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 14:18:31 / spekoppur

GLEÐILEGT ÁR

ÉG ÓSKA YKKUR GLEÐILEGS NÝS ÁRS MEÐ ÞÖKK FYRIR FRÁBÆRAN STUÐNING Á ÁRINU SEM VAR AÐ LÍÐA ,  ÁN YKKAR HEFÐI ÉG EKKI GETAÐ ÞETTAÐ

 

Ég er búin að hafa það æðislega gott öll jólin og áramótin :haha: búin að hlaða batteríin vel fyrir næstu törn.:haha:

Hafið þið það sem allra allra best elskurnar mínar.

Knús og kossar til ykkar allra.

                                                         

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 16:13:27 / spekoppur

GLEÐILEG JÓL

              

                                                   

  

                                                       

 

Ég mátti til með að láta aðeins í mér heyra og láta ykkur vitla elskurnar mínar að allt er ennþá í góðu standi hérna hjá mér matarlega , ég hef alveg náð a halda mér rokka svona um eitt til tvö kíló en það er bara allt í lagi ekkert til að gera veður útaf.:haha:

                                                        

Ég er að hafa mig til , er að fara í matarboð til dóttur minnar og tengdasonar :haha: mín bara í róglegheitum ekkert að fást við mat :haha: það er svolítið skrítið, maður var alltaf vanur að vera á öðru hundraðinu .Svo er jólaboð hjá bróður mínum á morgun og þá ætla ég að búa til gúmmóið okkar og fara með. Fyrir þá sem ekki vita hvað það er, þá er það eftirréttur DDV sem ég hef alltaf haft þegar ég verðlauna mig og langar í eitthvað gott.:haha::haha: Kærasta yngri sobar míns er búin að biðja mig að útbúa svona fyrir sig til að fara með í jólaboð á morgun, Hún er með svo mikið ofnæmi svo þetta er tilvalið fyrir hana enda alveg rosalega gott.

 

                                                                  

JÆJA ELSKURNAR MÍNAR ÉG ÓSKA YKKUR OG FJÖLSKYLDU YKKAR GLEÐILEGRA JÓLA OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ÁRI MEÐ ÞÖKK FYRIR ALLAN STUÐNINGINN Á SÍÐUSTU ÁRUM. ÞIÐ VITIÐ ÁN YKKAR HEFÐI ÉG EKKI GETAÐ ÞETTAÐ; ÞAÐ ER DEGINUM LJÓSARA.

 

                                                     


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 19:07:19 / spekoppur

Allt gengur vel

Hæ elskurnar mínar hér gengur allt vel á bænum :haha::haha: Alltaf nóg að gerast bæði í vinnunni og heima :haha: manni leiðist ekki á meðan. Við hjónin fórum að hlusta á Bjögga í Laugardalshöllinni það var alveg æðislegt í einu orði sagt:haha: So ætlum við að fara aftur næstu helgi og hlusta á Frostrósirnar :haha:

Ég hef ekki bakað eina einustu sort af smákökum þetta hefur bara ekki gerst frá því ég byjraði að búa fyrir rúmum 30 árum :whut: og viti menn það hefur engin kvartað.

Jæja elskurnar minar ég ætla að skella mér í leikfimina í vonda veðrinu :haha:

Gangi ykkur vel krúttin mín.


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 21:44:35 / spekoppur

ÁTAK Á AÐVENTUNNI

Þórdís Tinna,  Moggabloggari númer eitt,  er engin venjuleg kona.

Hún er skemmtileg, alltaf að hjálpa öðrum og sér það jákvæða við nánast allar kringumstæður.

Eins og flestir vita, á hún við alvarleg veikindi að stríða. 

Það þarf ekkert að kynna Þórdísi Tinnu, svo þekkt er hún orðin fyrir að vera hún sjálf.

Nú er rétti tíminn til að sýna Þórdísi Tinnu stuðning í verki. 

Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur.  Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.

 

Bankareikningur

0140-05- 015735.     Kt.101268-4039

 

Ég skora á aðra bloggara að taka þátt og birta samskonar færslu á sinni síðu. 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 18:06:35 / spekoppur

Aftur helgi

Hæ hæ elskurnar mínar það er bara að koma helgi aftur :haha::haha: tíminn líður alveg ótrúlega hratt ,komin jól áður en maður veit af :haha:

Matarmálin ganga ennþá mjög vel, margir mjög hissa þegar þeir sjá mig vigta enn ofan í mig :haha::haha: en ég læt það ekkert á mig fá það hjálpar mér við það að halda mér við efnið.

Litlu gullmolarnir mínir ætla allir að sofa hjá ömmu og afa á laugardagskvöldið það verður alveg æðislegt. Við ætlum að hafa kósýkvöld horfa á sjónvarpið og borða nammi og snakk :haha::haha:

Ég má til með að segja frá því að ég fór á "PABBANN" á laugardagskvöldið, það var alveg æðislega gaman mæli með því. Svo ætlum að fara eitthvað annað kvöld út að borða á Rauðará börnin okkar, tengdabörn og barnabörn gáfu okkur miðana á "PABBANN" og út að borða í 30 ára brúðkaupsafmæli :haha::haha: þau eru alveg yndialeg þessar elskur.

Gangi ykkur vel krúttin mín og eigið þið góða helgi 


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 22:46:49 / spekoppur

Yndisleg helgi

Guð minn góður hvað þetta var frábær helgi hjá okkur skvísunum:haha: mátti til með að segja ykkur frá því :haha: Ég var sem sagt að koma heim úr sumarbústaðaferð saumaklúbbsins "sex í fimum fingrum " helgin var alveg frábær í alla staði :haha: Komum á föstudagseftirmiðdegi og fórum strax að undirbúa kvöldmatinn Óla útbjó alveg frábæra sjávarréttasúpu nammi namm og svo var ostakaka sem Gunna útbjó og kom með úr nýja Nóa Síríus bæklingnum í eftirrétt hún Gunna klikkar ekki á kökunum skal ég segja ykkur :haha::haha:. Svo var talað saman prjónað og hlegið langt fram á nótt:haha:

Svo í hádeginu á laugardag höfðum við brunch allavegana álegg og brauð, flatkökur sem Guðrún Sæm bakaði nammi namm alveg rosalega góðar , ostar jógúrt ofl. :haha:

Svo um tvö leytið fór ég að undir búa kvöldmatinn með aðstoð sonar míns :haha: var í beinni við hann í símanum hjúkket að búið var að finna upp gsm :haha::haha: Ég skar niður gulrætur og lauk og brúnaði í smjöri í potti og setti svo rauðvín saman við það og sauð það niður í margar klukkutíma. Svo um kl 5 fór ég að undirbúa svínalundirnar búa til gráðostafyllinguna og setja inní lundirnar Óla hjálapði mér við það :haha: Svo lokaði ég kjötinu á pönnu og setti svo í ofnskúffu , setti svo sveppi á pönnu og afganginn af fyllingunni og lét það malla smá og setti síðan ofan á lundirnar og lét inn í ofn. :haha: Við vorum búnar að setja ostagrænmetið inn í ofninn , það er alveg sjúklega gott, við notuðum sveppi,lauk,blaðlauk,papríku og sætar kartöflur og settum svo gullost og piparost yfir þetta klikkar ekki, svo útbjó Nína  kartöflubáta sem einnig fóru í ofninn. Við ákváðum að fara í pottinn á meðan þetta mallaði í ofninum í ca hálftíma. Haldið þið að rafmagnið hafi ekki farið, en það sakaði ekki við kveiktum á kertum og fórum í pottinn . Svo þegar við komum uppúr var maturinn i ofninum athugaður og viti menn hann var tilbúinn , ofninn var svo heitur þegar rafmagnið fór. :haha:  En sósan humm ég hafði ekki  lokið við að útbúa hana, við dóum ekki ráðalausar :$ auðvitað kveiktum við á grillinu og settum pottinn á og kláruðum að útbúa hana nammi namm. Við vorum allar sammála um að þetta hefði verið æðislegur matur.  Þetta var rosalega rómó kvöldverður við kertaljós :haha: Við vorum rafmagnslausar í um 3 tíma.

Svo útbjó Hulda eftirréttinn sem voru allskonar ferskir ávextir, ís , heit súkkulaðisósa og sprauturjómi, Þetta var alveg æðislegt :haha::haha: Ég gerði fullt af kortum , svona afmæliskortum mér finnst svo gott að eiga svoleiðs á lager :haha: Svo var hlegið og kjaftað langt fram á morgun :haha::haha: Mæli með svona ferðum, þær eru æði  :haha:   Jæja elskurnar mínar nú eru bara nokkrir dagar í 1 árs kjörþyngdar afmælið mitt .  Gangi ykkur vel dúllurnar mínar.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Gaman Gaman
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1312 dögum
Til Alicante
Leitarbox

Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti