TAKMARKINU NÁÐ KOMIN Í KJÖRÞYNGD
Barnabörnin á barnalandi
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 6 ágúst
28.10.2007 22:46:49 / spekoppur

Yndisleg helgi

Guð minn góður hvað þetta var frábær helgi hjá okkur skvísunum:haha: mátti til með að segja ykkur frá því :haha: Ég var sem sagt að koma heim úr sumarbústaðaferð saumaklúbbsins "sex í fimum fingrum " helgin var alveg frábær í alla staði :haha: Komum á föstudagseftirmiðdegi og fórum strax að undirbúa kvöldmatinn Óla útbjó alveg frábæra sjávarréttasúpu nammi namm og svo var ostakaka sem Gunna útbjó og kom með úr nýja Nóa Síríus bæklingnum í eftirrétt hún Gunna klikkar ekki á kökunum skal ég segja ykkur :haha::haha:. Svo var talað saman prjónað og hlegið langt fram á nótt:haha:

Svo í hádeginu á laugardag höfðum við brunch allavegana álegg og brauð, flatkökur sem Guðrún Sæm bakaði nammi namm alveg rosalega góðar , ostar jógúrt ofl. :haha:

Svo um tvö leytið fór ég að undir búa kvöldmatinn með aðstoð sonar míns :haha: var í beinni við hann í símanum hjúkket að búið var að finna upp gsm :haha::haha: Ég skar niður gulrætur og lauk og brúnaði í smjöri í potti og setti svo rauðvín saman við það og sauð það niður í margar klukkutíma. Svo um kl 5 fór ég að undirbúa svínalundirnar búa til gráðostafyllinguna og setja inní lundirnar Óla hjálapði mér við það :haha: Svo lokaði ég kjötinu á pönnu og setti svo í ofnskúffu , setti svo sveppi á pönnu og afganginn af fyllingunni og lét það malla smá og setti síðan ofan á lundirnar og lét inn í ofn. :haha: Við vorum búnar að setja ostagrænmetið inn í ofninn , það er alveg sjúklega gott, við notuðum sveppi,lauk,blaðlauk,papríku og sætar kartöflur og settum svo gullost og piparost yfir þetta klikkar ekki, svo útbjó Nína  kartöflubáta sem einnig fóru í ofninn. Við ákváðum að fara í pottinn á meðan þetta mallaði í ofninum í ca hálftíma. Haldið þið að rafmagnið hafi ekki farið, en það sakaði ekki við kveiktum á kertum og fórum í pottinn . Svo þegar við komum uppúr var maturinn i ofninum athugaður og viti menn hann var tilbúinn , ofninn var svo heitur þegar rafmagnið fór. :haha:  En sósan humm ég hafði ekki  lokið við að útbúa hana, við dóum ekki ráðalausar :$ auðvitað kveiktum við á grillinu og settum pottinn á og kláruðum að útbúa hana nammi namm. Við vorum allar sammála um að þetta hefði verið æðislegur matur.  Þetta var rosalega rómó kvöldverður við kertaljós :haha: Við vorum rafmagnslausar í um 3 tíma.

Svo útbjó Hulda eftirréttinn sem voru allskonar ferskir ávextir, ís , heit súkkulaðisósa og sprauturjómi, Þetta var alveg æðislegt :haha::haha: Ég gerði fullt af kortum , svona afmæliskortum mér finnst svo gott að eiga svoleiðs á lager :haha: Svo var hlegið og kjaftað langt fram á morgun :haha::haha: Mæli með svona ferðum, þær eru æði  :haha:   Jæja elskurnar mínar nú eru bara nokkrir dagar í 1 árs kjörþyngdar afmælið mitt .  Gangi ykkur vel dúllurnar mínar.

 

Gunna skrifaði
já dúllan mín,sammála þér þetta var frábær helgi, takk fyrir þið eruð yndislegar,hvar væri maður án vina?love you
glingglo skrifaði
Vá hvað það hefur verið gaman hjá ykkur.Ég væri sko ekki á móti að vera í svona saumaklúbb, það er á hreinu.Hafðu það sem allra best. Bestu kveðjur ,,,glingglo,,,,,,,
Ásta skrifaði
mmm .. hljómar bara æðislega þessi helgi.
smuga skrifaði
En huggó hjá ykkur skvísanum :) og tilhamingju með mað að halda kjörþyngdini svona :) Takk fyrir upplýsingarnar með íbúðina :) knús smuga

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Gaman Gaman
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 635 dögum
Til Alicante
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti